Hlynur Þór Jensson

Forritari og myndatökumaður

Sjá nánar hér og þar

Um daginn þurfti ég að finna vef Listasafns Akureyrar og eins og maður gerir stundum gleymir að það eru til leitarvélar eins og Google. Í staðinn fór ég á vef Akureyrarbæjar. Sá ekkert efnilegt í hausnum en rak augun í grein um menningarveislu um helgina og ákvað að líta á hana. Jú, þónokkuð talað um nýja sýningu í safninu, en ekki einn einasti tengill yfir á vefsíðu þess.

Þrjár einfaldar reglur um vefslóðir

Hvernig fólk setur upp vefslóðir er mjög misjafnt. Margar góðar hugmyndir í gangi og sumar aðeins verri. Ég hef haft mjög ákveðnar skoðanir um hvernig slóðir skuli notaðar og ákvað að setja þær niður á blað sem þrjár einfaldar reglur.